Áhöfnin kom auga á bát með fimmtíu manns um borð í sínu fyrsta eftirlitsflugi
TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, flaug fyrir helgi til Sikileyjar til að sinna landamæraeftirliti á Miðjarðarhafi fyrir Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu, Frontex. Verkefnið er liður í Tríton-áætlun Frontex.
TF-SIF á flugvellinum í Catania á Sikiley
Flugvélin fór í sitt fyrsta eftirlitsflug um helgina og kom áhöfnin þá auga á bát sem vakti grunsemdir. Nánari eftirgrennslan leiddi í ljós að um borð var hópur flótta- og farandfólks, alls um fimmtíu manns. Ítalska lögreglan færði bátinn til hafnar. Fólkið er nú komið í öruggt skjól og fara ítölsk stjórnvöld nú með málefni þess. Tveir smyglarar hafa verið handteknir.