Ómannað loftfar jók eftirlitsgetu Landhelgisgæslunnar á hafinu

9. september, 2026

Ómannað loftfar, sem gert var út frá Höfn í Hornafirði í sumar, reyndist Landhelgisgæslunni vel við eftirlit á Íslandsmiðum.

Verkefnið var unnið í samstarfi við EMSA, Siglingaöryggisstofnun Evrópu en það fólst fólst í að nýta ómannaða loftfarið við fjölbreytt eftirlitsverkefni á suðausturhluta hafsvæðisins umhverfis landið. Reynslumiklar áhafnir frá portúgalska fyrirtækinu Tekever önnuðust stjórn loftfarsins, en því var flogið í alls 300 klukkustundir í sumar.

Loftfarið var meðal annars notað til að sannreyna og fylgja eftir ábendingum frá gervihnattavöktun EMSA, til dæmis vegna hugsanlegrar olíumengunar í sjó, auk þess sem það var nýtt til að staðfesta staðsetningu skipa á hafi.

Loftfarið jók þannig eftirlitsgetu Landhelgisgæslunnar á hafi og stuðlaði jafnframt að auknu öryggi sjófarenda. Í flugferðunum greindi loftfarið og fylgdist með fjölbreyttri skipaumferð og mannvirkjum á sjó, þar á meðal skemmtibátum á leið til landsins, flutningaskipum, fiskiskipum, farþegaskipum, eldiskvíum og skipum sem gáfu ekki upp staðsetningu sína. Loftfarið var einnig búið búnaði sem gerði því kleift að varpa björgunarbáti í sjó.

Ómannaða loftfarið var af gerðinni Tekever AR5. Það hefur sjö metra vænghaf, flýgur á um 60 hnúta hraða og er búið ýmsum hátæknibúnaði og skynjurum, þar á meðal ADS-B og SSR (Mode C) ratsjársvörum. Fjarflugmenn Tekever stýrðu loftfarinu frá Höfn í Hornafirði um gervihnattatengingu. Vegna verkefnisins voru skilgreind og auglýst sérstök svæði fyrir flug loftfarsins, frá sjávarmáli upp í 3.000 til 5.000 feta hæð.

Landhelgisgæslan, EMSA og Tekever færa öllum þeim sem komu að verkefninu kærar þakkir fyrir gott samstarf í sumar, þar á meðal Samgöngustofu, Fiskistofu, Fjarskiptastofu, Umhverfis- og orkustofnun, Avians og Isavia innanlandsflugvöllum.

Fleiri Fréttir