
Yfirmenn strandgæslna á Norður-Atlantshafi funda í Reykjavík
21. október 2026
Fundur yfirmanna strandgæslna á Norður-Atlantshafi, North Atlantic Coast Guard Forum (NACGF), hófst í Reykjavík í gær. Á...

Áhöfnin á varðskipinu Þór hefur annaðist eftirlit á hafsvæðinu djúpt suður af landinu í síðustu dögum. Meðal annars var fylgst með veiðum túnfiskveiðiskipa frá Japan sem eru að veiðum rétt sunnan við íslensku efnahagslögsöguna. Um 15 skip frá Japan og Suður-Kóreu eru þar á veiðum.
Túnfiskveiðiskip hafa á undanförnum áratugum veitt á þessum slóðum utan íslensku lögsögunnar en mikilvægt er að fylgjast með umferð á jöðrum efnahagslögsögu Íslands.
Með slíku eftirliti er meðal annars fylgst með því að skip haldi sig utan íslensku efnahagslögsögunnar þegar þau eru að veiðum. Sum skipanna leita til hafna á Íslandi til að sækja vistir.
Meðfylgjandi myndir voru teknar af varðskipinu Þór um helgina



