Loftrýmisgæsla NATO við Ísland að hefjast

23. júlí, 2018

23.07 2018

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Alls munu um 300 liðsmenn flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með um fimmtán F-15 orrustuþotur. 

Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 31. júlí til 08. ágúst.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.  Ráðgert er að verkefninu ljúki í lok ágúst. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands í samvinnu við Isavia, en samanber samning við utanríkisráðuneytið annast Landhelgisgæsla Íslands framkvæmd varnartengdra verkefna samkvæmt varnarmálalögum nr. 34/2008.