Freyja dregur flutningaskip til Akureyrar

17. nóvember, 2026

Áhöfn varðskipsins Freyju vinnur nú að því að draga erlent flutningaskip til hafnar á Akureyri eftir að stýrisbilun kom upp í skipinu um 210 sjómílur austnorðaustur af Langanesi.

Áhöfn flutningaskipsins hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir aðstoð vegna stýrisvandræða. Í kjölfarið var áhöfn varðskipsins Freyju kölluð út og hélt varðskipið frá Siglufirði í gærmorgun.

Freyja kom að flutningaskipinu um klukkan fjögur í nótt. Vel gekk að skjóta skotlínu yfir í flutningaskipið og skömmu síðar lauk áhöfn Freyju við að koma dráttartaug á milli skipanna.

Ferðin hefur gengið vel og gert er ráð fyrir að Freyja komi með flutningaskipið til hafnar á Akureyri annað kvöld.

Vel gekk að koma taug á milli skipanna.

Frá aðgerðum Freyju í nótt.

Vel gengur að draga flutningaskipið til lands.

Línu skotið á milli skipanna.

Fleiri Fréttir