🚁 Æfingin skapar meistarann, líka í myrkri

24. nóvember, 2026

Þegar útkall berst þarf hver og einn í þyrlusveit Landhelgisgæslunnar að vita nákvæmlega hvað hann á að gera, hvort sem er í björtu eða myrkri.

Áhafnir þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar æfa reglulega við fjölbreyttar og krefjandi aðstæður þar sem reynir á samhæfingu, samskipti og fumlaus vinnubrögð.

Þessar glæsilegu myndir tók Ólafur Hannesson á næturæfingu þyrlusveitarinnar á dögunum en þær gefa góða innsýn í störf áhafnarinnar þegar dagsbirtunnar nýtur ekki við. 🚁

Þyrlan skoðuð fyrir flugið.

Hlutverk stýrimannsins er m.a. að veita flugmönnunum leiðsögn þegar flogið er. Á skjá stýrmannsins má sjá kort af Íslandi.

Næturæfingar eru nauðsynlegar fyrir þyrlusveit Landhelgisgæslunnar.

Á þessari æfingu var æft með áhöfn á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Flugmennirnir ganga sáttir frá borði að lokinni vel heppnaðri æfingu.

Áhöfnin.

Fleiri Fréttir