
Freyja kom með flutningaskipið til Akureyrar
20. nóvember 2026
Varðskipið Freyja kom með erlenda flutningaskipið, sem varð fyrir stýrisbilun um 210 sjómílur austnorðaustur af Langanes...

Varðskipið Freyja kom með erlenda flutningaskipið, sem varð fyrir stýrisbilun um 210 sjómílur austnorðaustur af Langanesi, til Akureyrar síðdegis í gær. Verkefnið tók heldur lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir en gekk að öðru leyti vel.
Á fimmta tímanum í gær komu dráttarbátar frá Akureyrarhöfn til móts við skipin undan Hjalteyri og tóku þar við við flutningaskipinu.
Hafnsögumaður fór þá um borð í flutningaskipið og í kjölfarið sleppti áhöfn Freyju dráttartauginni. Þar með lauk aðkomu Landhelgisgæslunnar að verkefninu sem hófst þegar áhöfn flutningaskipsins óskaði eftir aðstoð vegna stýrisvandræða skipsins fyrr í vikunni.
Þorgeir Baldursson tók meðfylgjandi myndir í gær.


Varðskipið Freyja á siglingu.