Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskip sökk

26. nóvember, 2026

Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskip sökk um 60 sjómílur austur af landinu í gær. Björgunaraðgerðir á slysstað voru umfangsmiklar. Auk þyrlu Landhelgisgæslunnar tóku þátt í aðgerðunum áhöfnin á eftirlitsflugvélinni TF-SIF, sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fjöldi fiskiskipa.

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti og þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á heilsugæslunni á Egilsstöðum.

Aðgerðir þyrlusveitarinnar á vettvangi stóðu yfir í um tvær klukkustundir við mjög krefjandi aðstæður og voru varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í stöðugum samskiptum við áhöfn þyrlunnar.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarboð frá skipstjóra fiskiskipsins laust eftir klukkan 17:00 um að leki væri kominn að skipinu.


Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum. Skömmu síðar lýsti skipstjórinn yfir neyðarástandi og upplýsti stjórnstöðina að skipverjar væru að yfirgefa skipið.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang.

Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð sem og aðgerðarstjórnir á Norðurlandi eystra, Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.

Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom á vettvang laust eftir 20:00 og klukkan 21:15 kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn sem og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang.

Hluti áhafnar fiskiskipsins var fluttur til Reykjavíkur í nótt með eftirlitsflugvélinni TF-SIF og flugvél Norlandair.

Áhöfnin á TF-GRO. Helgi Guðnason, stýrimaður, Bergur Stefánsson, læknir, Jens Sigurðarson, flugstjóri, Elvar Már Sigurðsson, stýrimaður, Brynhildur Ásta Bjartmarz, flugmaður, Jón Tómas Vilhjálmsson, flugvirki.

Áhöfnin á TF-SIF. Gunnar Guðmundsson, flugstjóri, Örn Sigurgeirsson, flugmaður, Magnús Örn Einarsson, stýrimaður, Jóhannes Eyfeld, stýrimaður, Teitur Gunnarsson, stýrimaður

Flugvél Norlandair á Reykjavíkurflugvelli.

Fleiri Fréttir