Áhöfnin á TF-GRO sótti veikan skipverja

Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á tíunda tímanum í morgun til að sækja veikan sjómann sem var um borð í grænlensku togara

  • 20200207_113936565_iOS

7.2.2020 Kl: 14:44

Áhöfnin á TF-GRO sótti veikan skipverja

Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á tíunda tímanum í morgun til að sækja veikan sjómann sem var um borð í grænlenskan togara sem staddur var rúmlega 150 sjómílur vestur af Látrabjargi, rétt utan miðlínu milli Ísland og Grænlands. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð frá björgunarstjórnstöðinni í Danmörku.

Skipið tók stefnuna til Íslands en slæmt veður var á þeim slóðum þar sem skipið var statt. TF-GRO tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli laust eftir klukkan 10 en jafnframt var áhöfnin á TF-EIR til taks á Reykjavíkurflugvelli ef á þyrfti að halda. Eftir rúmlega hálftíma flug lenti þyrlan á Rifi til að fylla á eldsneytistankana áður en haldið var í átt að skipinu.

Þyrlan var komin að grænlenska togaranum á tólfa tímanum og hófst áhöfnin þegar handa við að undirbúa hífingar. Sigmaður Landhelgisgæslunnar fór um borð í skipið og undirbjó sjúklinginn til flutnings. Þrátt fyrir nokkuð krefjandi aðstæður gengu hífingar vel og að þeim loknum var haldið rakleiðis á Reykjavíkurflugvöll. Þar lenti TF-GRO klukkan 13:42 og í kjölfarið var skipverjinn fluttur þaðan með sjúkrabíl á Landspítalann.

20200207_113937637_iOSGuðmundur Ragnar Magnússon, sigmaður, fer um borð í grænlenska togarann.


TF-GRO sækir veikan skipverja