Níu tonn af hlýju frá Íslandi

Starfsfólk Landhelgisgæslunnar pakkaði níu tonnum af hlýjum fatnaði sem sendur var með herflutningavél til Úkraínu.

  • _gjf5261_52559274811_o

13.12.2022 Kl: 10:58

Níu tonn af hlýju frá Íslandi voru um borð í kanadískri herflutningavél sem flaug frá Keflavíkurflugvelli áleiðis til Úkraínu í gær. Um að ræða vetrarútbúnað fyrir varnarsveitir Úkraínu og almenning sem er annars vegar afrakstur sjálfboðavinnu þúsunda Íslendinga og hins vegar kaup utanríkisráðuneytisins á margvíslegum vetrarbúnaði.

Utanríkisráðuneytið auglýsti fyrr í haust eftir vetrarútbúnaði fyrir varnarsveitir Úkraínu. Gengið hefur verið frá kaupum á skjólfatnaði og skóm frá Fjallakofanum, 66°N og Dynjanda fyrir tæpar 50 milljónir króna en raunvirði varningsins er um 140 milljónir. Þessi búnaður, auk sjúkragagna sem íslenskur aðili hefur gefið, var fluttur með kanadískri herflutningavél áleiðis til Úkraínu í dag. Í farminum eru auk þess rúmlega 3.500 pör af lopasokkum sem íslenskur almenningur hefur prjónað fyrir Úkraínu í tengslum við verkefnið Sendum hlýju og aðrar ullarflíkur sem íslenskt og úkraínskt prjónafólk hefur ýmist prjónað eða gefið á svonefndum hannyrðahittingum.

„Þungur hrammur vetrarins færist nú hægt og bítandi yfir Úkraínu og eins og við höfum séð beita rússnesku innrásaröflin honum sem vopni í yfirstandandi átökum. Sem herlaus þjóð getur Ísland eðli máls samkvæmt ekki lagt úkraínskum varnarsveitum til hergögn en við getum hins vegar sent þeim hlýjan skjólfatnað, sem er ekki síður nauðsynlegur á ísköldum vígvellinum en hefðbundin vopn,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Starfsfólk Landhelgisgæslunnar pakkaði varningnum um helgina og setti á bretti sem var síðan staflað um borð kanadísku herflutningavélina á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Auk utanríkisráðherra fylgdust fulltrúar Sendum hlýju og hannyrðahittingsins og Jeannette Menzies, sendiherra Kanada á Íslandi með því sem fram fór.

„Það er rík ástæða til að þakka öllum þeim sem eiga þátt í að við sendum alla þessa hlýju til Úkraínu í dag. Þar vil ég nefna fyrirtækin sem við höfum átt í góðu samstarfi við, Landhelgisgæsluna sem hefur annast umsýslu og kanadíska flugherinn sem flytur varninginn á áfangastað. Og síðast en ekki síst á hannyrða- og prjónafólk á Íslandi sérstakar þakkir skildar fyrir að sýna sinn hlýhug í verki með svo áþreifanlegum hætti,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Frétt fengin af vef utanríkisráðuneytisins. Ljósmyndir: Gunnar Flóvenz

_gjf5190_52559277596_oKanadíska herflutningavélin kemur til lendingar.

_gjf5261_52559274811_oStarfsfólk Landhelgisgæslunnar pakkaði varningnum. 

_gjf5281_52558825432_oGeorg Kr. Lárusson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir voru  meðal þeirra sem mættu á öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli.

_gjf5353_52559569999_o

_gjf5247_52559275821_o