Einn fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús.
7.3.2022 Kl: 11:04
Á sjötta tímanum í gær hafði skipstjóri á íslensku
fiskiskipi samband við Landhelgisgæsluna og óskaði eftir aðstoð í kjölfar þess
að snurpuvír hafði slitnað og einn um borð slasast. Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu
Landhelgisgæslunnar, var þegar í stað kölluð út en fiskiskipið var statt um 25
sjómílur norðvestur af Kópanesi.
Veiðarfærið slitnaði einnig frá skipinu. Annað
fiskiskip fylgdist með veiðarfærinu þar sem skipið sigldi á móti þyrlunni.
Varðskipið Þór sem var í grenndinni var sömuleiðis kallað út til að aðstoða við
að ná nótinni um borð á nýjan leik. Á áttunda tímanum í gærkvöld var
skipverjinn hífður um borð í þyrluna og fluttur á Landspítalann í Fossvogi.
Áhöfnin á varðskipinu Þór hófst handa við að aðstoða áhöfn fiskiskipsins við að
koma veiðarfærinu aftur um borð en sökum straums og sjólags óskaði fiskiskipið
eftir því að varðskipið tæki það um borð til sín.
Þór var kominn að bryggju á
Ísafirði eftir hádegisbil í dag og áhöfn varðskipsins kom veiðarfærinu í land
síðdegis.
Frá aðgerðum áhafnarinnar á varðskipinu Þór.