60 ár frá komu Óðins

Hátíðarkaffi var haldið um borð í skipinu í gær þar hollvinir varðskipsins mættu og gerðu sér glaðan dag.

  • 0159.-ODINN-c

Mánudagur 27. janúar 2020

Landhelgisgæsla Íslands, Hollvinasamtök Óðins og Sjóminjasafnið fagna í dag 60 ára afmæli varðskipsins Óðins. Hátíðarkaffi var haldið um borð í skipinu í gær þar hollvinir varðskipsins mættu og gerðu sér glaðan dag. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, var meðal viðstaddra ásamt Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra, og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra. Guðmundur Hallvarðsson, formaður hollvinasamtaka Óðins, rakti sögu skipsins sem kom til landsins þann 27. janúar 1960. Skipið var smíðað í Álaborg í Danmörku árið 1959. Það er 910 tonn, 63 metrar á lengd og 10 metrar á breidd.

 

Odinn_kemur_nyr_til_Rekjavikur_i_januar_1960

Við komu Óðins 27. janúar 1960

IMG_6747Eliza Reid, Guðni Th. Jóhannesson, Lilja Alfreðsdóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir kynna sér stjórntæki Óðins. Myndir: Jón Páll Ásgeirsson.

IMG_6764Fjölmenni var í hátíðarkaffinu.IMG_6753_1580118301419Guðmundur Hallvarðsson, formaður Hollvinasamtaka Óðins, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra.IMG_6730Gestir saman komnir í þyrluskýli skipsins.IMG_6760Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid.IMG_6758Björn Baldvinsson og Ingvi Hrafn Jónsson voru í fyrstu áhöfn skipsins sem sigldi frá Danmörku til Íslands í janúar 1960.IMG_6762Jón Páll Ásgeirsson, Guðni Th. Jóhannesson og Elíza Reid.IMG_6756Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Lilja D. Alfreðsdóttir, Guðni Th. Jóhannesson, Elíza Reid og Guðmundur Hallvarðsson.IMG_6739Forsetinn skoðar „forsetasvítuna um borð í Óðni.IMG_6696Vélstjórarnir saman komnir.
IMG_6749Áslaug Arna við stjórnvölinn.IMG_6720Margt var um manninn.IMG_6676Skipið er hið glæsilegasta.IMG_6734Ingvi Hrafn Jónsson, Björn Baldvinsson og Guðmundur Hallvarðsson.IMG_6703Guðmundur Hallvarðsson flytur ávarp.IMG_6687Fjölmennt var í hátíðarkaffinu. IMG_6712Guðni Th. Jóhannesson flytur ávarp.
Eftirfarandi samantekt var birt á heimasíðu Landhelgisgæslunnar á fimmtugsafmæli skipsins, árið 2010:

Varðskipið tók þátt í öllum þremur þorskastríðunum á 20. öldinni. Öflugasta vopn skipsins var 57 mm fallbyssa, staðsett á palli fyrir framan brúna. Þekktasta og árangursríkasta vopnið í þorskastríðunum voru þó togvíraklippurnar, sem sjá má á afturdekki skipsins. Óðinn reyndist sérlega vel sem björgunarskip. Hann dró alls tæplega 200 skip til lands eða í landvar vegna bilana, veiðarfæra í skrúfu eða eldsvoða um borð. Einnig dró hann flutninga- og fiskiskip fjórtán sinnum úr strandi. Þá bjargaði skipið áhöfnum strandaðra skipa þrisvar sinnum og tvisvar bjargaði það áhöfnum sökkvandi skipa. Óðinn sinnti almennu veiðieftirliti alla tíð og beindist það bæði að íslenskum og erlendum skipum. Fylgjast þurfti með hvar var veitt og hvernig veiðarfærin voru. Einnig var Óðinn oft kallaður til þegar ófærð var í landi og erfiðleikar við fólks- og vöruflutninga, ekki síst í afskekktustu byggðum landsins.

Odinn.......

Síðasta sjóferð Óðins í þágu Landhelgisgæslunnar var farin í júní 2006 nánar en þá var stefnan tekin á Bretlandseyjar í kurteisisheimsókn. Á leiðinni var ákveðið að sigla um svæði þar sem erlendir togarar voru grunaðir um að halda sig án leyfis og tilkynninga. Stóð Óðinn færeyskan togara að því að sigla inni í íslenskri efnahagslögsögu án þess að tilkynna sig eða hafa veiðileyfi, var hann tekinn í landhelgi eins og talað var um áður fyrr. Í ferðinni var forstjóri Landhelgisgæslunnar, Georg Kr. Lárusson sem lenti þar með í vinnu við skýrslugerð og að gefa lögfræðilegar ráðleggingar en skipherrann í síðustu ferð Óðins var Sigurður Steinar Ketilsson sem nú er skipherra á Tý.

Odinn_1980


Óðinn er með sérstaklega styrkt stefni og byrðing fyrir siglingar í ís. Um borð eru tvær aðalvélar sem skila 18 sjómílna ganghraða, ásamt ljósavélum. Siglinga- og fjarskiptatæki voru ætíð af bestu gerð. Dráttarspil var 20 tonna, fyrir 3 km langan dráttarvír.

Odinn_III_eftir_asiglingu_31

Óðinn eftir ásiglingu í þorskastríðinu

Myndirnar eru úr safni Valdimars Jónssonar loftskeytamanns sem Björn Bjarnason dfyrrv. óms- og kirkjumálaráðherra gaf Landhelgisgæslunni á tölvutæku formi í tilefni af flutningi höfuðstöðva Landhelgisgæslunnar frá Seljavegi 32 í Björgunarmiðstöðina Skógarhlíð.