

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, tók á móti Øyvind Dunsæd, yfirmanni norsku strandgæslunnar, um borð í varðskipinu Þór þegar norska varðskipið Hopen kom til hafnar í Reykjavík í síðustu viku.
Tilefni heimsóknarinnar var leiðangur norska varðskipsins sem hófst fyrr í mánuðinum og lýkur um miðjan ágúst. Frá Íslandi siglir Hopen til Bandaríkjanna en þaðan verður haldið til Kanada, Grænlands og síðan aftur til Íslands þar sem fram fara sameiginlegar æfingar og þjálfun áður en skipið heldur aftur heim til Noregs.
Tveir úr áhöfn varðskipsins Þórs sigldu með Hopen frá Reykjavík til Bandaríkjanna en það er liður í að styrkja enn frekar þau nánu tengsl sem eru á milli Landhelgisgæslunnar og norsku strandgæslunnar.
Landhelgisgæsla Íslands tekur þátt í samstarfi strandgæslna á Norðurslóðum, Arctic Coast Guard Forum, ásamt norsku strandgæslunni. Samstarfsvettvangnum er ætlað að efla öryggi, leitar- og björgunargetu og stuðla að aukinni vernd þeirra sem nýta sér hafsvæði norðurslóða.
Öflugt samstarf strandgæslna á Norðurslóðum eykur öryggi svæðisins og stuðlar að hnökralausum og samhæfðum viðbrögðum á þessu víðfeðma svæði. Leiðangur Hopen í sumar sýnir að samstarf strandgæslna á Norðurslóðum er virkt og þýðingarmikið.
Í heimsókn sinni til Reykjavíkur færði Øyvind Dunsæd Landhelgisgæslunni glæsilegt málverk í tilefni 100 ára afmælis hennar sem Georg Kr. Lárusson tók við fyrir hönd Landhelgisgæslunnar.
Norska strandgæslan, sem er hluti af norska sjóhernum, og Landhelgisgæsla Íslands hafa átt í nánu samstarfi um áratugaskeið. Samstarfið er mikilvægur þáttur í eftirliti, öryggisgæslu, leit og björgun á hafinu umhverfis landið. Það felst meðal annars í reglulegum samráðsfundum, upplýsingaskiptum og sameiginlegum æfingum sem miða að því að auka öryggi á Norður-Atlantshafi.
Í heimsókninni um borð í Þór var jafnframt haldinn reglulegur samráðsfundur þar sem farið var yfir brýnustu málefni á hafsvæðinu, nýjustu tækni og frekara samstarf stofnananna.
Landhelgisgæslan þakkar norsku strandgæslunni kærlega fyrir veglega gjöf í tilefni aldarafmælisins og óskar áhöfn Hopen alls hins besta í þessum metnaðarfulla leiðangri.








