Landhelgisgæsla Íslands er 100 ára í dag

1. júlí, 2026

Landhelgisgæsla Íslands er 100 ára í dag. Stofnun Landhelgisgæslunnar má rekja til þess þegar björgunarskipið Þór var keypt til landsins fyrir tilstuðlan stórhuga frumkvöðla í Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Þann 1. júlí árið 1926 eignaðist ríkissjóður Íslands skipið og við þann dag hefur stofndagur Landhelgisgæslunnar verið miðaður.  Skömmu áður kom til landsins fyrsta varðskipið sem smíðað var fyrir Íslendinga. Það var gufuskipið Óðinn, 512 brúttólesta skip, vopnað tveimur 57 mm fallbyssum.

Eitt mikilvægasta hlutverk Landhelgisgæslunnar er að tryggja öryggi á hafsvæðinu umhverfis Ísland og starfsfólk Landhelgisgæslunnar hefur í heila öld verið reiðubúið til þess að vera til taks fyrir sjófarendur og landsmenn alla, oft við krefjandi kringumstæður þegar öll sund hafa virst lokuð.

Saga Landhelgisgæslunnar geymir frækin og merkileg augnablik. Hin eftirminnilegu afrek áhafna varðskipanna í Þorskastríðunum gleymast aldrei og á heimasíðu Landhelgisgæslunnar, lhg.is, má finna tímalínu þar sem hægt er að fræðast um sögu stofnunarinnar með lifandi hætti.

Hlutverk Landhelgisgæslunnar hefur á þessum 100 árum vaxið og tekið miklum breytingum. Sem dæmi um það ber Landhelgisgæslan ábyrgð á framkvæmd varnartengdra verkefna í umboði utanríkisráðuneytisins sem hefur gert stofnuninni kleift að byggja upp öfluga stöðumynd af loftrýminu og hafsvæðinu sem hefur eflt getu stofnunarinnar til eftirlits og stuðlað að auknu þjóðaröryggi. Einnig er vert að minnast þeirra afreka sem starfsfólk Landhelgisgæslunnar hefur unnið í störfum sínum á Miðjarðarhafi við björgun þúsunda mannslífa og við þjálfun úkraínskra sprengjusérfræðinga í Litháen.

Landhelgisgæsla Íslands hefur aldrei verið jafn vel tækjum búin og í dag. Varðskipin Þór og Freyja, sjómælingaskipið Baldur, aðgerðabátarnir Óðinn, Týr og Ægir, eftirlitsflugvélin TF-SIF og þyrlurnar TF-GRO, TF-EIR og TF-GNA hafa sannað sig með afgerandi hætti. Þá væri Landhelgisgæslan ekkert án starfsfólksins sem hefur lagt líf og sál í störf sín síðustu 100 ár.

Á 100 ára afmælisdegi Landhelgisgæslunnar þökkum við landsmönnum það traust sem þeir hafa sýnt okkur og munum við áfram leggja metnað í að vinna af kostgæfni fyrir land og þjóð.

Til stóð að fagna aldarafmælinu með táknrænum hætti í Vestmannaeyjum í dag en verkefni Landhelgisgæslunnar eru ætíð í forgangi og 100 árunum verður fagnað með viðeignandi hætti síðar á árinu.

Okkur þótti við hæfi að taka saman gömul og eftirminnileg myndbrot undir tónum Hauks Morthens sem söng um afrek Landhelgisgæslunnar í fyrsta Þorskastríðinu. Myndirnar eru flestar úr safni Rúv sem veitti góðfúslegt leyfi til notkunar í tilefni dagsins.

Við erum og höfum verið til taks í 100 ár.

Fleiri Fréttir