
Belgar annast loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins
6. ágúst 2026
Flugsveit belgíska flughersins er væntanleg til landsins í lok vikunnar, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalags...

Áhöfnin á varðskipinu Þór, sérsveit ríkislögreglustjóra og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar héldu sameiginlega æfingu á Faxaflóa í gær. Æfingin var hefðbundin en Landhelgisgæslan og embætti ríkislögreglustjóra standa reglulega fyrir sameiginlegum æfingum, bæði á sjó og á landi.
Á æfingunni í gær gafst tækifæri til að prófa nýja aðgerðabáta sem nýst geta við uppgönguæfingar og liðsflutninga á sjó. Bátarnir sem bera nöfnin Týr og Ægir eru öflugir og voru afhentir fyrr í sumar.
Æfingin gekk afar vel og var mikilvægur liður í að samhæfa aðgerðir embættis ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar á sjó.





