
Stjórnvöld vakta ferðir rússneska herskipsins Yuri Ivanov
8. júlí 2026
Rússneska herskipið Yuri Ivanov, sem sigldi innan íslenskrar efnahagslögsögu en utan íslenskrar landhelgi fyrr í sumar, ...

11.5.2020 Kl: 15:05
Áhöfnin á varðskipinu Tý hélt fallbyssuæfingu við ísröndina NV af Vestfjörðum á föstudag. Alls var 64 skotum skotið í átt að ísjaka sem notaður var sem skotmark. Af meðfylgjandi myndbandi að dæma virðist æfingin hafa gengið einstaklega vel og ekki skemmdi fyrir að veðrið var með besta móti. Guðmundur St. Valdimarsson, bátsmaður, tók myndbandið saman.

Fallbyssan um borð í varðskipinu Tý.