Í hádeginu var staðsetning hans: 66°08.89 18°28,98.
26.9.2018 Kl: 14:05
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu í morgun um
að nokkuð stór og mikill borgarísjaki væri við mynni Eyjafjarðar.
Landhelgisgæslan telur ástæðu til að vara sjófarendur við ísjakanum enda getur
hann reynst varasamur, sérstaklega í myrkri. Mikilvægt er að þeir sem leið eiga
um svæðið séu meðvitaðir um staðsetningu jakans en töluvert hefur kvarnast úr
honum. Í hádeginu var staðsetning hans: 66°08.89 18°28,98.