Nemendur við HR greindu framtíðarsamsetningu þyrluflota Landhelgisgæslunnar

20. nóvember, 2026

Tveir nemendur úr meistaranámi í rekstrarverkfræði við Háskólann í Reykjavík, Grímur Dagur Grímsson og Bjarki Þór Jónsson, luku nýverið áhugaverðu verkefni fyrir Landhelgisgæsluna sem hluta af námskeiðinu Notkun líkana við stjórnun, og fór lokakynning þess fram í dag.

Í verkefninu var greind framtíðarsamsetning þyrluflota stofnunarinnar og metið hvernig mismunandi útfærslur styðja best við verkefni á sviði leitar og björgunar, sjúkraflugs og eftirlits.

Greiningin byggði á raunverulegum rekstrargögnum Landhelgisgæslunnar og beitingu aðferða rekstrarverkfræði og gagnagreiningar. Niðurstöðurnar munu nýtast sem mikilvægt innlegg í áframhaldandi stefnumótun um framtíðargetu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar.

Landhelgisgæslan þakkar nemendunum og leiðbeinanda þeirra kærlega fyrir gott samstarf og vönduð vinnubrögð.

Fleiri Fréttir