Viðurkenningar veittar vegna skútubjörgunar

Aðmíráll í bandarísku strandgæslunni afhenti viðurkenningar vegna björgunar áhafnar Valiant

Charles D. Michel, aðmíráll og næstæðsti yfirmaður bandarísku strandgæslunnar, sæmdi í morgun skipverja á Árna Friðrikssyni, rannsóknaskipi Hafrannsóknastofnunar, áhöfn flugvélar Isavia, TF-FMS, og starfsmenn í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar viðurkenningu fyrir þátt þeirra í að bjarga áhöfn bandarísku skútunnar Valiant í sumar. Athöfnin fór fram um borð í varðskipinu Þór þar sem þeir Michel aðmíráll og Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, áttu stuttan fund fyrr um morguninn. Aðmírállinn er staddur hér á landi í tengslum við Arctic Circle-ráðstefnuna í Hörpu.

 Ingvi Friðriksson skipstjóri á Árni Friðrikssyni, var sæmdur sérstakri viðurkenningu fyrir hugdirfsku (e. Certificate of Valor) en áhöfn skipsins fékk viðurkenningu fyrir störf í almannaþágu (e. Certificate of Public Service). Flugstjóri og flugmaður TF-FMS og varðstjórar og stjórnandi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar voru einnig sæmdir viðurkenningu fyrir störf í almannaþágu.

Að lokinni athöfninni, sem haldin var í sannkölluðu blíðskaparveðri, bauð Landhelgisgæslan til vöfflukaffis í matsal varðskipsins. 

Bandaríska skútan Valiant lenti í alvarlegum sjávarháska aðfaranótt 26. júlí þegar brotsjór reið yfir hana. Þrír voru um borð. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar nam boð frá neyðarsendi skútunnar djúpt suðvestur af landinu, skammt utan við mörk fiskveiðilögsögunnar. Varðstjórar og stjórnandi í stjórnstöðinni skipulögðu og stýrðu aðgerðum sem leiddu að lokum til þess að skútan fannst og áhöfninni var bjargað.

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson var í þrjátíu sjómílna fjarlægð frá staðsetningu neyðarsendisins og óskaði stjórnstöð LHG eftir því að skipið færi þegar á vettvang. Snemma um morguninn var flugvél Isavia, TF-FMS, var kölluð út til leitar og tókst flugmönnum hennar að miða út fjarskiptasendingar frá skútunni og staðsetja hana með nákvæmum hætti. Var Árna Friðrikssyni í framhaldinu beint á staðinn. Skipstjóri og áhöfn rannsóknarskipsins björguðu mönnunum þremur um borð við krefjandi aðstæður og hlúðu vel að þeim uns hægt var að koma þeim í land nokkrum dögum síðar.

Talsvert var fjallað um málið í fjölmiðlum, bæði hér á landi og í Bandaríkjunum. Fyrr í haust hafði embættismaður í bandaríska sendiráðinu á Íslandi samband við Landhelgisgæsluna og tilkynnti um að bandaríska strandgæslan vildi heiðra þá Íslendinga sem mestan þátt áttu í þessari giftusamlegu björgun þar sem góð samvinna og fumlaus vinnubrögð starfsfólks þessara þriggja stofnana réðu mestu um hve vel fór. 

Jón Páll Ásgeirsson, yfirstýrimaður hjá Landhelgisgæslunni, tók þessar myndir af afhöfninni í morgun. 


Ingvi Friðriksson, skipstjóri á Árna Friðrikssyni, tekur við viðurkenningunni.  


Áhöfnin á Árna Friðrikssyni, tekur við viðurkenningunni. 


Snæbjörn Guðbjarnarson flugstjóri og Hallgrímur Jónsson flugmaður taka við viðurkenningunni. 


Stjórnandi og varðstjórar í stjórnstöð LHG, auk mannauðsstjóra LHG, taka við viðurkenningunni. 


Föngulegur hópur á þilfari Þórs. 

IMG_0417

Georg Kr. Lárusson, forstjóri LHG, og Ásgrímur L. Ásgrímsson, frkvstj. aðgerðasviðs LHG, ræða við Michel aðmírál.