Fréttir

Fyrirsagnalisti

24. nóv. 2005 : Fréttavefur Landhelgisgæslunnar óvirkur um sinn

Bilun hefur verið hjá vefþjóni Landhelgisgæslunnar og því hefur ekki verið hægt að setja fréttir á vefinn síðastliðinn sólarhring.  Þetta stendur til bóta í dag. Lesa meira
 

24. nóv. 2005 : Forval vegna smíði nýs varðskips og útboð á nýrri flugvél fyrir Landhelgisgæsluna auglýst á þessu ári

Eftirfarandi fréttatilkynning var birt á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins í morgun: Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, kynnti ríkisstjórn í morgun að farið verði í forval á skipasmíðastöðvum sem uppfylltu ákveðin skilyrði m.t.t. rekstrarstöðu og reynslu af sambærilegum verkefnum vegna smíði nýs varðskips fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Í kjölfar forvals verði valdir 5-10 aðilar sem síðan fái að bjóða í smíði á nýju fjölnota varðskipi. Helstu kröfur til nýs varðskips eru, að það geti sinnt eftirliti í efnahagslögsögu Íslendinga, sinnt mengunarvörnum, afgreitt eldsneyti til björgunarþyrlna á flugi og brugðist við í þágu almannavarna hvar sem er á landinu. Skipið verður einnig að geta stutt við viðbrögð og varnir gegn hryðjuverkaógn, nýst til samvinnu við sérsveit lögreglunnar og tollgæslu til varnar smygli á fólki og fíkniefnum og sinnt björgunarstörfum hverskonar. Í björgunarhlutverkinu felst m.a að draga skip og báta og við framkvæmd þess þarf að miða við, að umferð stórra flutningaskipa stóraukist um efnahagslögsöguna og við strendur landsins á næstu árum. Tímaáætlun verkefnisins er sem hér segir: Forval auglýst á EES                  24. nóvember nk. Opnun forvalsgagna                    12. janúar 2006 Þarfalýsing LHG lögð fram          15. febrúar 2006 Opnun verðtilboða                      14. maí 2006 Gert er ráð fyrir að samningagerð verði lokið í júní 2006 og að nýtt fjölnota varðskip Landhelgisgæslu Íslands verði afhent innan 30 mánaða frá undirritun samnings. Vinnuhópur Landhelgisgæslu Íslands hefur undanfarna mánuði unnið að tæknilýsingu fyrir útboð á nýrri flugvél fyrir gæsluna. Leitað hefur verið til Försvarets Materialverk (FMV) í Svíþjóð, en FMV hafði yfirumsjón með undirbúningi og framkvæmd útboðs sænsku strandgæslunnar á þremur eftirlitsflugvélum. Tímaáætlun verkefnisins er sem hér segir: Drög (1. útg) tilbúin                     15. des. 2005 Útboð auglýst á EES                  22. des. 2005 Tilboð opnuð þann                      8. mars 2006 Niðurstaða útboðs                      8. maí 2006 Samningur undirritaður                7. júní 2006 Afhending vélar til LHG               7. des. 2007 Reykjavík, 23. nóvember 2005 Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica