Opið hús í flugskýli Landhelgisgæslunnar á laugardag

8. júní, 2026

Í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgsæslu Íslands bjóðum við landsmönnum til opins húss í flugskýli okkar við Nauthólsvík á Reykjavíkurflugvelli, næstkomandi laugardag þann 13. júní frá kl. 12:00 til kl. 16:00.

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar taka vel á móti gestum og kynna þeim fjölbreytta starfsemi Landhelgisgæslunnar sem fram fer um allt land. Gefst fólki kostur á að skoða þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar sem og margvíslegan annan búnað sem notaður er í starfseminni svo sem báta, köfunarbúnað, sprengjueyðingarbúnað, sjókort, ýmis mælitæki, myndir úr allri starfseminni og margt fleira áhugavert.

Bílastæði við flugskýli Landhelgisgæslunnar verða eingöngu fyrir gangandi umferð og hreyfihamlaða en gestum er góðfúslega bent á að leggja bílum á bílastæði við Háskólann í Reykjavík og í Nauthólsvík.

Landhelgisgæslan vonast til að sem flestir kíki í heimsókn til að kynna sér starfsemina, hitta starfsmenn, skoða tækjabúnaðinn og fagna þessum tímamótum með okkur.

Fleiri Fréttir