

Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur verður í stuttri þjónustuheimsókn í íslensku landhelginni í dag við Reykjanes. Varðskipið Þór fylgir kafbátnum um landhelgina, þar sem fram fara áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn. USS Oregon er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir kafbátar bera ekki kjarnavopn.
Þetta er í níunda sinn sem kjarnorkuknúinn kafbátur bandaríska sjóhersins kemur í þjónustuheimsókn í íslenska landhelgi eða frá því að þáverandi utanríkisráðherra tilkynnti 18. apríl 2023, að slíkum kafbátum yrði heimilað að hafa viðkomu á Íslandi.
Heimsóknin er á ábyrgð utanríkisráðuneytisins en Landhelgisgæsla Íslands leiðir framkvæmd hennar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og sóttvarnarlækni í samræmi við settar verklagsreglur. Vel hefur tekist til með undirbúning og framkvæmd heimsóknanna þökk sé þéttu samstarfi og samráði hlutaðeigandi stofnana innanlands og góðu samstarfi við bandaríska sjóherinn.
Meðfylgjandi mynd er úr safni.