Árni Sæberg heiðraður um borð í Þór

4. júní, 2026

Árni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðsins, varð sjötugur um síðustu helgi. Við hjá Landhelgisgæslunni höfum verið svo lánsöm að njóta einstakra hæfileika Árna sem hefur verið ,,hirðljósmyndari“ Landhelgisgæslunnar í nær hálfa öld. Árni sigldi á árum áður með varðskipum Gæslunnar og fyrsta mynd Árna sem birtist á síðum Morgunblaðsins var mynd hans af þyrlunni TF-RAN lenda á varðskipinu Ægi í St. Johns í Nýfundnalandi árið 1980.

Myndasafn Landhelgisgæslunnar byggir að stórum hluta á glæsilegum myndum úr smiðju Árna Sæberg sem hefur skráð sögu Landhelgisgæslunnar í gegnum linsuna og fyrir það erum við ævinlega þakklát.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, færði Árna þakklætisvott í tilefni stórafmælisins um borð í varðskipinu Þór í vikunni að viðstöddu framkvæmdateymi Landhelgisgæslunnar.

Fleiri Fréttir