

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í dag. Fjölmenni lagði leið sína í miðborg Reykjavíkur. Hátíðahöldin hófust með hefðbundnum hætti klukkan 10 í morgun þegar minningarstund var haldin við Minningaröldurnar í Fossvogskirkjugarði um þá sem hlotið hafa vota gröf hér við land. Að athöfn lokinni var haldin sjómannadagsmessa í Dómkirkjunni.
Venju samkvæmt sýndi þyrlusveitin hvernig björgun úr sjó er framkvæmd í víða um land.
Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, tóku þátt í hátíðahöldunum ásamt starfsfólki Landhelgisgæslunnar.
Jón Páll Ásgeirsson, fyrrverandi stýrimaður Landhelgisgæslunnar, og Ólafur Pálsson, fyrrverandi vélstjóri hjá Landhelgisgæslunni, voru meðal þeirra sem heiðraðir voru við hátíðlega athöfn í Hörpu.
Á meðfylgjandi myndum má m.a. sjá þátttakendur Landhelgisgæslunnar ásamt Höllu Tómasdóttur forseta og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra.
Til hamingju með daginn sjómenn!







