
Landhelgisgæslan annaðist útkall á Grænlandi
21. ágúst 2026
Þyrlur Landhelgisgæslunnar eru þannig búnar að þær geta annast sjúkraflug langt frá landi ef svo ber undir. Slík flug er...

29.10.2021 Kl: 9:33
Á dögunum komu starfsmenn Umhverfisstofnunar um borð í
varðskipið Þór færandi hendi. Í farteskinu höfðu þau tösku með búnaði til að
taka sýni úr olíuflekk í sjó. Tilgangur með sýnatöku er að tengja saman
hugsanlegan mengunarvald við olíuflekkinn. Haldið var námskeið um borð fyrir
áhöfnina og starfsmenn aðgerðasviðs, þar sem farið var yfir verklag um
framkvæma sýnatöku.
Til stendur að halda annað námskeið fyrir áhöfn Freyju og
þar með trygg að áhafnir beggja skipa geti framkvæmt slíkar sýnatökur.
Mikil ánægja var með náskeiðið og þökkum við starfsfólki
Umhverfisstofnunar kærlega fyrir samstarfið.
Helgi Jensson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, hélt fyrirlestur um notkun búnaðarins.
