
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Laugardagur 1. júní 2002.
Umboðsmaður rússneska togarans Nivenskoe hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl.13:04 í dag og óskaði eftir þyrlu til að sækja hjartveikan mann um borð í togarann sem var þá staddur á Reykjaneshrygg. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði þá samband við varnarliðið á Keflavíkurflugvelli og óskaði eftir þyrlu til að sækja sjúklinginn. Komið var að togaranum kl.19:30 og lenti þyrlan á Reykjavíkurflugvelli kl. 20:58. Sjúklingurinn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.