Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina

8. október, 2026

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar.

Í þættinum er fjallað um sögu stofnunarinnar, starfsemi hennar í dag og verkefni framtíðarinnar.

Meðal umræðuefna eru afmælisfagnaður Landhelgisgæslunnar og þær umfangsmiklu breytingar sem orðið hafa á starfseminni á þeim rúmlega tveimur áratugum sem Georg hefur gegnt starfi forstjóra. Þá er rætt um öryggis- og varnarmál sem hann telur falla vel að hlutverki og starfsemi stofnunarinnar, en leggur jafnframt áherslu á að skilgreina þurfi hlutverk hennar á þeim vettvangi til lengri tíma.

Sérstaklega er fjallað um þróun flugdeildar Landhelgisgæslunnar en Georg telur að brýnt sé að bæta fjórðu þyrlunni við þyrluflotann. Í þættinum er einnig komið inn á bakgrunn Georgs, uppvaxtarárin í Holti í Önundarfirði og þær tilviljanir sem leiddu hann í laganám við Háskóla Íslands.

Hlekk á viðtalið má finna hér fyrir neðan.

Fallhlífastökk úr TF-SIF.

Fleiri Fréttir