

Í bókinni SVIPMYNDIR ÚR 100 ÁRA SÖGU – LANDHELGISGÆSLA ÍSLANDS 1926-2026 er farið í máli og myndum yfir starfsemi þessarar merku stofnunar sem alla tíð hefur notið mikils trausts og velvilja hjá íslensku þjóðinni.
Gæsla landhelginnar, sem þurfti að verja í þremur þorskastríðum, og björgunarstörf voru áberandi fyrstu 80 árin en undanfarin 20 ár hefur umfangið aukist mikið. Brottför varnarliðsins kallaði á eflingu þyrlusveitarinnar og svo bættust öryggis- og varnartengd verkefni við. Fjölþjóðlegt samstarf jókst og árlega heldur Landhelgisgæslan utan um stórar alþjóðlegar æfingar hér á landi. Þá opnaði þátttaka í landamæragæslu við Miðjarðarhaf og fiskveiðieftirliti við Afríkustrendur nýjar dyr.
Landhelgisgæslan ræður nú yfir fullkominni eftirlits- og gæsluflugvél og öflugum varðskipum. Hún gerir út vel búnar björgunarþyrlur, kraftmikla aðgerðabáta og sjómælingaskip. Tilraunir eru gerðar með ómönnuð flugför til eftirlits og ómannaður kafbátur kannar hafdjúpin. Það er enginn ellibragur á Landhelgisgæslunni.
Höfundar bókarinnar eru Guðjón Arngrímsson og Guðni Einarsson. Mikið og fjölbreytt myndefni prýðir bókina og leggja þar margir sitt af mörkum, ekki síst Árni Sæberg sem heita má að sé hirðljósmyndari Landhelgisgæslunnar, en hann er þess utan einn af „gömlu“ varðskipsmönnunum.
Bókin fæst í öllum bókaverslunum en einnig er hægt að panta hana í netfanginu: holar@holabok.is eða í síma 692-8508. Það er Bókaútgáfan Hólar sem gefur bókina út (sjá nánar á: holabok.is).