
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 18. júní 2002. Á kynningarfundi sem haldinn var í utanríkisráðuneytinu í dag vegna almannavarnaræfingarinnar Samvarðar 2002 var sagt frá æfingu sprengjusérfræðinga sem haldin verður á varnarsvæðinu samhliða Samvarðaræfingunni. Æfingin hefur hlotið heitið ,,Northern Challenge“ og hefur sprengjudeild Landhelgisgæslunnar skipulagt hana. Þátttakendur verða frá Eistlandi, Bretlandi, Danmörku og Bandaríkjunum auk Íslands.Sprengjudeild Landhelgisgæslu Íslands sér nú alfarið um sprengjueyðingu fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli en sprengjudeildin þar var lögð niður í kjölfarið á sérstökum samningi þar sem Landhelgisgæslan tók að sér þá starfsemi. Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands