
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 18. júní 2002.
Áhöfn frystiskipsins Guðrúnar Gísladóttur KE-15 bjargaðist giftusamlega er skipið strandaði á skeri við Lofoten-eyjarnar í Norður Noregi en skipið var á leið til löndunar í bænum Leksnes er atburðurinn átti sér stað. Björgunarmiðstöðin í Bodö tilkynnti björgunarstjórnstöð Landhelgisgæslu Íslands um atburðinn kl. 9:26 í morgun.
Áhöfn Guðrúnar Gísladóttur sá sér ekki annað fært en að yfirgefa skipið og komust skipverjar, alls 20 manns, í gúmmíbjörgunarbáta. Um kl. 10:12 bárust fregnir frá Bodö um að allir skipverjar væru komnir um borð í skip norsku strandgæslunnar. Dráttarbátur er væntanlegur á strandstað um kl. 15:00.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands