
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 1. júlí 2002. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk í gær beiðni um að sækja sjúkan skipverja um borð í flutningaskipið Lagarfoss sem statt var um 150 sjómílur suðvestur af Reykjavík. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, flaug frá Keflavík um kl. 23:17 og var sjúklingurinn kominn um borð kl. 00:33. Lent var við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 01:47 en þaðan var skipverjinn fluttur á sjúkrahús. Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi