Ratsjárgervihnettir notaðir til fiskveiðieftirlits

2. júlí, 2002

Þriðjudagur 2. júlí 2002.


Á vegum Landhelgisgæslunnar verður nk. föstudag haldinn fundur vegna samstarfsverkefnis Evrópusambandsins um notkun á ratsjárgervihnöttum til fiskveiðieftirlits en Landhelgisgæslan er þátttakandi í því.  Rannsóknarstofnun Evrópusambandsins stjórnar verkefninu en aðrir þátttakendur eru frá fiskveiðieftirlitnu á Spáni, í Portúgal, Grikklandi, Bretlandi og Noregi auk tæknifyrirtækja og háskólastofnana.


Með verkefninu er verið að finna leiðir til að senda fiskveiðieftirlitstöðvum ratsjármyndir af haffletinum þannig að þær geti séð skip sem ekki eru í fjareftirlitskerfi viðkomandi stöðvar.  Að auki verður þróaður hugbúnaður til að greina ratsjárendurvarp frá skipum þannig að þekkja megi þau aftur.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi


 

Fleiri Fréttir