Sprengjusérfræðingar rannsaka torkennilegan pakka á pósthúsi varnarliðsins

3. júlí, 2002

Þrír sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru kallaðir út upp úr kl. 10 í morgun vegna torkennilegs pakka á pósthúsi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Pakkinn var frá Bandaríkjunum. Á bandarískum pósthúsum eru reglur sem gefa til kynna hvenær pakki telst grunsamlegur eða ekki. Þessi pakki taldist skv. reglunum vera grunsamlegur enda var hann stílaður á rangt heimilisfang og viðtakandi ekki nægilega skilgreindur. Vegna þessa ákvað póstmeistarinn að kalla á öryggisverði sem rýmdu bygginguna og síðan var haft samband við Landhelgisgæsluna sem sér um sprengjueyðingu fyrir varnarliðið.


Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar rannsökuðu pakkann með gegnumlýsingu og óskuðu eftir upplýsingum um sendandann. Lögreglunni í Bandaríkjunum tókst að hafa uppi á honum og í framhaldinu var ákveðið að opna pakkann með sérstakri tækni og innihaldið, tímarit, súkkulaði og kökur, var afhent herlögreglunni á Keflavíkurflugvelli sem rannsakar málið nánar.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands

Fleiri Fréttir