Rússneskt varðskip kemur í opinbera heimsókn til Landhelgisgæslunnar

3. júlí, 2002


Miðvikudagur 3. júlí 2002.


Rússneska varðskipið Múrmansk kemur í opinbera heimsókn til Íslands á vegum Landhelgisgæslunnar sunnudaginn 7. júlí nk. og verður við bryggju Landhelgisgæslunnar við Ingólfsgarð í Reykjavík til 11. júlí.


Varðskipið Múrmansk er 70 metra langt, 18 metra breitt og um 3500 tonn að stærð. Heimahöfn skipsins er Múrmansk en þaðan lagði skipið af stað laugardaginn 29. júní. Í áhöfn eru 90 manns. Þar af eru 10 yfirmenn, 12 liðþjálfar og 60 undirmenn. Að auki kemur 6 manna sendinefnd frá höfuðstöðvum rússnesku strandgæslunnar. Fyrir nefndinni fer Logvinenko aðmíráll sem er næstæðsti yfirmaður stofnunarinnar.


Skipið mun verða til sýnis fyrir almenning á meðan á heimsókninni stendur sem hér segir:


8. júlí frá kl. 10-129. júlí frá kl. 10-12 og 15-17 og 10. júlí frá kl. 10-12 og 15-17.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands

Fleiri Fréttir