
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 8. júlí 2002.
Óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar vegna stúlku sem missti meðvitund eftir að hafa fallið af hestbaki á Grímstunguheiði, rétt SV við Eyjavatn á Auðkúluheiði um kl. 17:25 í dag. Að mati lækna var nauðsynlegt að sækja hana tafarlaust og var áhöfn TF-SIF þegar kölluð út. Hélt þyrlan áleiðis að slysstað kl. 18:00 og var komin þangað kl. 18:49, á svipuðum tíma og björgunarsveitarmenn. Þyrlan lenti með stúlkuna á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi um kl. 19:37.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands