
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 5. júlí 2002.
Um kl. 11 í morgun hafði norski togarinn TENOR samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar vegna veiks skipverja um borð. Hafði þyrlulæknir þegar samband við skipið en samkvæmt lýsingum skipverja á ástandi hans þótti ástæða til að sækja sjúklinginn með þyrlu. TF-LÍF var þegar send af stað og var komin að skipinu um kl. 15. Vélin lenti með sjúklinginn á Reykjavíkurflugvelli kl. 16:50 og var hann fluttur þaðan með sjúkrabíl.
Þar sem skipið var mjög langt frá landi, fylgdi Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SÝN, þyrlunni að skipinu í öryggisskyni. Skipið var að veiðum á úthafskarfamiðunum fyrir utan 200 sjómílna mörkin á Reykjaneshrygg.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands