Þyrla sækir veikan sjómann og slasaðan mótorhjólamann

11. júlí, 2002

Fimmtudagur 11. júlí 2002.


Um kl. 22:15 í gærkvöldi var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, kölluð út vegna veiks sjómanns um borð í norska loðnuveiðiskipinu Kings Bay sem statt var 120 sjómílur norður af Horni.  Þyrlan fór í loftið kl. 22:53.  Eftir flugtak barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um aðstoð vegna slasaðs mótorhjólamanns undir Henglinum.  Þyrlunni var þegar snúið þangað og maðurinn fluttur á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.  Þyrlan fór aftur í loftið um kl. 23:14 og hélt til norska loðnuveiðiskipsins þar sem veiki skipverjinn var hífður um borð.  Eftir millilendingu til eldsneytistöku á Ísafirði var þyrlunni flogið til Reykjavíkurflugvallar þar sem lent var um kl. 3:20 í morgun og skipverjinn var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands

Fleiri Fréttir