
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 22. ágúst 2002. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning frá Neyðarlínunni um ellefuleytið í gærkvöldi um að fólk sem statt var við Tröllahóla á Selfossi og fólk í Landeyjum hafi séð fjögur rauð blys á lofti í átt að Þjórsárósum. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði þá samband við m/b HRUNGNIR GK sem staddur suður af Þjórsárósum en áhöfnin hafði ekki orðið vör við blysin. Báturinn hélt áleiðis að árósunum og áhafnir annarra báta á svæðinu voru einnig látnar vita. Auk bátanna, óku lögreglumenn frá Selfossi að árósunum og urðu einskis varir. Skyggni var gott á svæðinu. Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands