
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 29. ágúst 2002.
Komið hefur í ljós að herflugvélin sem sjómælingamenn Landhelgisgæslunnar fundu í fyrradag á hafsbotni í Skerjafirði er norsk og af gerðinni Northrop.
Kafarar, sjómælingamenn og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fóru eftir hádegið í gær að flakinu á sjómælingabátnum BALDRI og voru í alls sjö tíma að rannsaka það. Strax kom í ljós að vélin er eins hreyfils og búin vélbyssum. Einnig sást móta fyrir norska fánanum á flakinu. Er rannsókn lauk á níunda tímanum í gær var talið öruggt að hér væri um norska herflugvél að ræða af gerðinni Northrop en mælingar á vænghafi og hlutföllum flugvélarinnar að öðru leyti renndu stoðum undir þá ályktun.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands