
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 3. september 2002.
Varðskip stóð dragnótarbát að ólöglegum veiðum á Breiðarfirði um hádegisbilið í gær. Báturinn hafði engar aflaheimildir og hvorki almennt veiðileyfi né dragnótarveiðileyfi. Þá kom í ljós er löggæslumenn frá varðskipinu höfðu farið um borð að enginn yfirvélstjóri var á bátnum. Skipstjóri bátsins fékk fyrirmæli um að halda til hafnar á Flateyri þar sem lögregla tók á móti honum um áttaleytið í gærkvöldi. Málið hefur verið kært til sýslumannsins á Patreksfirði.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands