Hvalir gæða sér á smáfiski á skyndilokuðu svæði

10. október, 2002

Fimmtudagur 10. október 2002.


Varðskip var nýlega á Halamiðum út af Vestfjörðum og fór í nokkra togara til aflaeftirlits. Á svæðinu voru átta togarar við þorsk- og ýsuveiðar.  Við mælingar varðskipsmanna kom í ljós hátt hlutfall smáþorsks í aflanum.  Höfðu þeir samband við vakthafandi fiskifræðing Hafrannsóknarstofnunar og var í framhaldi af því tekin ákvörðun um skyndilokun svæðisins.  Skyndilokunin gildir í viku og þróun mála verður könnuð í framhaldi af því.


Skipstjórar á svæðinu voru nokkuð óhressir með lokunina og töldu hana óþarfa þar sem mikil hreyfing væri á fiskinum.  Var haft á orði að einhver þyrfti að koma þessum skilaboðum til hvalanna sem þarna vaða um sjóinn í tuga ef ekki hundruðatali en á svæðinu er mikill fjöldi hnúfubaka, höfrunga og hnísa sem hafa greinilega komist í girnilegt æti.  Hnúfubakur er einmitt þekktur fyrir að synda undir dreifðar smáfiskatorfur og reka þær saman með loftbólum og fylla síðan ginið á leiðinni uppúr sjónum.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands

Fleiri Fréttir