Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti veikan mann frá Hornafirði til Reykjavíkur

14. október, 2002

Mánudagur 14. október 2002.


Læknir á Hornafirði hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 14:17 í gær vegna sjúklings sem þurfti nauðsynlega að komast á sjúkrahús í Reykjavík.  Sjúkraflugvél gat ekki lent á Hornafirði vegna mikils hliðarvinds og landleiðin var einnig ófær.


Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 14:28 og fór TF-SIF í loftið kl. 15:09.   Þyrlan lenti á Höfn í Hornafirði kl. 17:05 og fór þaðan aftur kl. 17:34.  Á leiðinni til Reykjavíkur var óskað eftir aðstoð þyrlunnar vegna alvarlegs bílslyss á Skeiðum. Var gert ráð fyrir að þyrlan lenti á Selfossi og sækti hinn slasaða þar en þegar á reyndi kom í ljós að fljótlegra yrði að flytja hann strax til Reykjavíkur með sjúkrabíl.


TF-SIF lenti með sjúklinginn við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 18:50.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands

Fleiri Fréttir