Þyrla og varðskip Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu vegna strands Sigurvonar

23. október, 2002

Miðvikudagur 23. október 2002.


Um kl. 22:45 í gærkvöldi er áhafnir þyrlu og varðskips Landhelgisgæslunnar æfðu notkun nætursjónauka vestur af Hvaleyjum, bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar upplýsingar um strand Sigurvonar RE-64 í innsiglingunni til Sandgerðis.  Þyrlunni var þegar í stað flogið á strandstað NA af Graseyri og varðskipi Landhelgisgæslunnar var einnig stefnt í þá átt.


Tilkynningarskyldan hafði þá þegar kallað út björgunarskipið Hannes Hafstein sem kom fljótt á staðinn. Einn úr sex manna áhöfn Sigurvonar var tekinn um borð í björgunarskipið en fimm manns úr áhöfninni unnu að því að koma dráttartaug milli bátanna.  Það tókst um kl. hálf tólf en þá var TF-LÍF á sveimi yfir strandstaðnum, reiðubúin til aðstoðar ef á þyrfti að halda. 


Tvær þyrlur Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli voru einnig á flugi nálægt strandstaðnum og buðu áhafnir fram aðstoð. Björgunaraðgerðum lauk á miðnætti er Hannnes Hafstein hafði dregið Sigurvon til hafnar.  Aðstoð þyrla og varðskips var því afþökkuð og lenti TF-LÍF á Reykjavíkurflugvelli kl. átta mínútur yfir tólf á miðnætti.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi


 

Fleiri Fréttir