Dómsmálaráðherra kynnir sér notkun nætursjónauka. Þjálfun flugáhafna Landhelgisgæslunnar að ljúka

24. október, 2002

Fimmtudagur 24. október 2002.


Undanfarin kvöld hafa flugáhafnir Landhelgisgæslunnar æft notkun nætursjónauka undir leiðsögn Peter Rainey sérfræðings frá skoska fyrirtækinu Highland Aerosystems Ltd. og er þeirri þjálfun að ljúka í kvöld. Eftir að þjálfuninni hér heima lýkur fara flugmenn Landhelgisgæslunnar til Frakklands þar sem þeir fá þjálfun í flughermi í notkun sjónaukanna hjá fyrirtækinu Helisim. Síðan verða sjónaukarnir notaðir við leitar- og björgunarflug Landhelgisgæslunnar.


Í gærkvöldi var dómsmálaráðherra, Sólveigu Pétursdóttur, og fjölmiðlafólki boðið að kynna sér sjónaukana og þá gjörbyltingu sem notkun þeirra hefur í för með sér.  Fór ráðherra í flug með TF-LÍF ásamt fréttamönnum og kvikmyndatökumönnum.


Nætursjónaukarnir gera það að verkum að flugmenn og aðrir í áhöfnum vélanna geta séð í myrkri.  Það eykur notkunarmöguleika þyrlanna til muna og veldur því að flugmenn geta flogið þeim að nóttu til við aðstæður sem ekki var áður kleyft að athafna sig við.  Sem dæmi má nefna að björgunarflug í fjalllendi á óupplýstum svæðum hefur hingað til verið nánast óframkvæmanlegt.  Ljóst er að tæki þessi valda gjörbyltingu við leit og björgun bæði á sjó og landi.


 


Kostnaður vegna sjónaukanna ásamt tilheyrandi búnaði og nauðsynlegum breytingum á loftförum Landhelgisgæslunnar  er 36 milljónir króna.  Samtals hefur verið safnað 24 milljónum og fimmtíu þúsundum til verkefnisins og vonir standa til að söfnun ljúki fyrir áramót.


 


Til verkefnisins hafa eftirtaldir gefið: Þyrlusjóður Stýrimannaskólans í Reykjavík, fjórtán milljónir, Sjóvá-Almennar hf.  eina milljón, Rauði krossinn eina milljón og fimmtíu þúsund, Kvenfélagið Aldan eina milljón og dómsmálaráðuneytið hefur lagt fram sjö milljónir króna.


 


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi


Landhelgisgæslu Íslands


 


 

Fleiri Fréttir