
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 11. nóvember 2002.
Neyðarlínan hafði samband við Landhelgisgæsluna í morgun vegna manns sem hafði slasast er vélskófla sem hann stjórnaði lenti úti í sjó við Ólafsvíkurenni. Óskað var eftir þyrlu í viðbragðsstöðu. Lögreglan á Ólafsvík hringdi kl. 11:04 og óskaði eftir að þyrlan sækti manninn á Rif. TF-LÍF fór í loftið tæpum tuttugu mínútum síðar og sótti manninn og son hans sem var talsvert þrekaður eftir að hafa lent úti í sjó er hann reyndi að bjarga föður sínum. Þyrlan lenti með feðgana hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi kl. 13:18.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands