
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 7. febrúar 2003.
Læknir á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 9:31 vegna hjartveiks manns sem þurfti að komast tafarlaust á sjúkrahús í Reykjavík. TF-LÍF fór í loftið kl. kl. 9:56 og var komin til Stykkishólms kl. 10:26. Þaðan var haldið af stað kl. 11 og lent á Reykjavíkurflugvelli kl. 11:33. Þar beið sjúkrabíll sem flutti sjúklinginn á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut. Ekki er vitað um líðan sjúklingsins að svo stöddu.
Flugið tókst vel en ókyrrð var í lofti yfir Snæfellsnesi, skýjað og éljagangur.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands