Varðskip á heimleið með Polarsyssel í drætti

9. apríl, 2003

Miðvikudagur 9. apríl 2003. 

 

Varðskip er nú  á heimleið með norska selveiðiskipið Polarsyssel í drætti. 

 

Er varðskipið kom á staðinn um kl. 14:30 hafði norska selveiðiskipinu Polarfangst tekist að draga Polarsyssel út úr ísnum.  Þá var hafist handa við að koma dælum frá varðskipinu um borð í Polarsyssel en Polarfangst tók olíu úr Polarsyssel og hélt strax af stað til veiða.   

 

Um kl. 16 hafði varðskipsmönnum tekist að koma dælum um borð í Polarsyssel og höfðu þær vel undan lekanum.  Stuttu síðar var línu skotið yfir í Polarsyssel og var haldið af stað heim á leið kl. 16:30.    

 

Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi 

Landhelgisgæslu Íslands

Fleiri Fréttir