
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 2. maí 2003.
Í gærkvöldi kl. 21:07 hafði björgunarmiðstöðin í Stavanger samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar vegna veiks skipverja um borð í norska togaranum Langvin sem var við veiðar á Reykjaneshrygg. Eftir að læknir í áhöfn TF-LIF hafði fengið upplýsingar hjá skipstjóra Langvin um líðan sjúklingsins var ákveðið að sækja hann með þyrlu um morguninn.
Áhöfn TF-LIF var kölluð út kl. 3:55 í morgun og og var flugtak kl. 4:46. Komið var að skipinu kl. 5:30 og var búið að hífa sjúklinginn um borð kl. 6:05. Lent var við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 7:53 en þar beið sjúkrabifreið sem flutti sjúklinginn á Landspítala Háskólasjúkrahús.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands