Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan sjómann í þýskan togara á Reykjaneshrygg

5. maí, 2003

Mánudagur 5. maí


Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti eftir miðnætti við Landspítala Háskólasjúkrahús með slasaðan sjómann af þýska togaranum Atlantic Peace. Skipstjóri Atlantic Peace hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um áttaleytið í gærkvöldi og óskaði eftir læknisaðstoð vegna slasaðs sjómanns um borð. Honum var gefið samband við lækni í áhöfn TF-LIF sem taldi nauðsynlegt að sækja manninn með þyrlu.


Áhöfn TF-LIF var kölluð út kl. 20:11 og fór þyrlan í loftið kl. 20:49. Fljúga þurfti um 240 sjómílur að skipinu sem var að karfaveiðum á Reykjaneshrygg og var þyrlan komin þangað kl. 22:45.  TF-LIF lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 0:37.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands

Fleiri Fréttir