TF-SIF sótti slasaðan mann til Hornvíkur

17. maí, 2003

Laugardagur 17. maí 2003.


Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum í dag vegna manns sem hafði slasast í austurhluta Hornbjargs norðan við Hornbjargsvita.  Maðurinn var við eggjatöku í bjarginu þegar grjót féll á hann og slasaði.


TF-SIF fór í loftið kl. 16:07 og lenti í Hornvík kl. 17:22 en þangað hafði maðurinn verið fluttur með hraðbátnum Patton.  Það hafði verið gert þar sem ómögulegt var að hífa manninn upp úr fjörunni við slysstað.  TF-SIF lenti með hinn slasaða við Landspítala háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 19:45.  Flugveður var gott mestan hluta leiðarinnar.


Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúiLandhelgisgæslu Íslands


 

Fleiri Fréttir